Eftir Friðrik Jónsson formann BHM og Brynhildi Heiðar- og Ómarsdóttir formann jafnréttisnefndar BHM
Í dag eru 47 ár síðan konur á Íslandi gengu fyrst út á kvennafrídegi. Þá notuðu tugþúsundir kvenna fæturna til að mótmæla því kerfislæga misrétti sem þær eru beittar á vinnumarkaði. Nærri hálfri öld síðar er enn ástæða til að ganga út. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu bæði femínísku hreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar eru konur enn með 21,9% lægri atvinnutekjur en karlar að meðaltali. Miðað við fullan vinnudag þýðir það að konur hafa unnið fyrir laununum sínum klukkan 15:15 í dag.
Í aldaraðir hefur konum verið gert að niðurgreiða eigið vinnuframlag. Að veita afslátt af vinnu sinni, þjónustu og umhyggju án þess að hafa um það nokkuð val. Því verður að linna.
Í dag er ein helsta ástæða kynbundins launamunar sú að fjöldi fólks sem starfar við umönnun, heilbrigðisþjónustu og menntun er illa launað. Við þekkjum öll hina hina hefðbundnu möntru að almenni markaðurinn haldi þeim opinbera uppi því hinn fyrrnefndi skapi verðmætin. Ef við tölum tæpitungulaust þýðir slíkt tal að þau verkefni sem sinnt er af hinu opinbera sé í raun til byrði en ekki uppbyggingar. Slík orðræða er röng. Þessi störf eru að stærstum hluta unnin af konum og eru grundvöllur hagsældar og hagvaxtar hér á landi. Þessi störf eru undirverðlögð. Störf kvenna eru ekki enn metin að verðleikum, hvorki hér á landi né annars staðar í heiminum.
Sjötíu prósent opinberra starfsmanna eru konur. Aðilar á vinnumarkaði sem tala niður virði, tilgang og mikilvægi opinberrar þjónustu eru í raun og veru að tala gegn mikilvægi, verðmæti og réttu virðismati á vinnuframlagi og verðmætasköpun kvenna.
Þessi söngur heldur linnulaust áfram. Þó hefur reynsla okkar af heimsfaraldri síðustu tvö árin sýnt og sannað að verðmætasköpun, hvort heldur sem á almennum eða opinberum markaði, sé algjörlega háð því að fólk, aðallega konur, haldi áfram að mæta til vinnu. Mæti þrátt fyrir veirur, smittölur, stöðu á gjörgæsludeildum og dánartíðni. Án kvennanna sem starfa við menntun, heilbrigðisþjónustu, umönnun og stjórnsýslu hefði þjóðfélagið stöðvast og staðnað.
Á meðan faraldurinn geisaði hér á landi lifði samfélagið af tímabundið tap 20 þúsund starfa á almennum markaði. Þjóðin hefði hins vegar aldrei lifað af sambærilegt tap á opinberum markaði. Þar voru hreinlega mannslíf að veði, framtíð þjóðar og fullveldi. Það er löngu tímabært að við upprætum kynjamisrétti úr íslensku samfélagi. Öll þurfa að taka þátt í þeirri baráttu; við í verkalýðshreyfingunni, fulltrúar launagreiðenda og stjórnvöld. Tökum höndum saman og leiðréttum skakkt verðmætamat og hættum að gefa afslátt af störfum kvenna. Við verðum að meta störf kvenna að verðleikum í eitt skipti fyrir öll.